Persónuverndarstefna og viðskiptaskilmálar
Snakk.is | Iðnmark ehf.
Útgáfa 29. október 2026
Skilmálar þessir og persónuverndarstefnan eru einnig birt á ensku til hægðarauka. Ef misræmi er á milli útgáfa gildir íslenska útgáfan.
Almennir viðskiptaskilmálar
Iðnmark ehf., kt. 410288-1259, Gjótuhrauni 5, 220 Hafnarfirði („félagið“), selur vörur til fyrirtækja og rekstraraðila, m.a. í gegnum vefverslun sína sem aðgengileg er á www.snakk.is („vefverslunin“). Skilmálar þessir gilda um hvers konar viðskipti, þ.m.t. pantanir, milli félagsins og viðskiptavinar, þ.m.t. þau sem eiga sér stað í gegnum vefverslunina. Með viðskiptavini í skilmálum þessum er átt við þann aðila sem leggur inn pöntun fyrir vörum. Viðskiptavinir í skilningi skilmála þessara geta eingöngu verið lögaðilar.
Pantanir og afhending
Þegar viðskiptavinur hefur lagt inn og staðfest pöntun á vörum frá félaginu er kominn á samningur milli félagsins og viðskiptavinar um kaup á þeim vörum sem pöntunin nær til. Viðskiptavinur getur ekki afpantað vörurnar nema með samþykki félagsins. Samningurinn er þó háður því að þær vörur sem pantaðar hafa verið séu til á lager. Félagið áskilur sér þannig rétt til að falla frá pöntun, breyta pöntun, bjóða aðra vöru í staðinn eða bjóða aðra lausn ef vara sem pöntuð hefur verið er ekki til á lager.
Félagið reynir að afhenda pantanir eins fljótt og auðið er en ábyrgist ekki tiltekinn afhendingartíma. Viðskiptavinur fær tilkynningu þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. Pantanir eru afhentar á starfstöð félagsins að Gjótuhrauni 5, 220 Hafnarfirði á hefðbundnum opnunartíma nema viðskiptavinur hafi óskað eftir því að þær yrðu sendar.
Ábyrgð og áhætta af keyptum vörum flyst frá félaginu yfir til viðskiptavinar þegar viðskiptavinur hefur veitt vörunum viðtöku á starfstöð félagsins eða þegar þær hafa verið afhentar til flutningsaðila, hafi viðskiptavinur óskað eftir flutningi á vörunum. Félagið ber því enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vörum eftir slíkt tímamark, t.d. í flutningi eða ef sendingar týnast í flutningi.
Ef vara er ekki vitjað eða veitt viðtaka innan sjö daga frá því að tilkynning um að pöntun sé tilbúin til afhendingar er send viðskiptavini flyst ábyrgð og áhætta af vörunum yfir á viðskiptavin frá því tímamarki, óháð því hvort afhending hafi átt sér stað.
Verð og greiðsluskilmálar
Öll verð sem fram koma á vefsíðunni eru í íslenskum krónum og án virðisaukaskatts. Sé óskað eftir því að vörur séu sendar til viðskiptavinar reiknast sendingarkostnaður sérstaklega og fer hann eftir umfangi pöntunar og afhendingarstað.
Félagið áskilur sér rétt til að breyta verðum sínum eftir þörfum hverju sinni, án sérstakrar tilkynningar til viðskiptavinar. Slíkar breytingar hafa hins vegar ekki áhrif á pantanir sem þegar hafa verið gerðar.
Þegar pöntun hefur verið lögð inn fær viðskiptavinur sendan reikning frá félaginu. Greiðslukjör eru samkvæmt samkomulagi við hvern viðskiptavin og koma fram á reikningi. Gjalddagi og eindagi koma einnig fram á reikningi. Félaginu er heimilt að krefjast þess að greitt sé fyrir vörurnar að fullu áður en þær eru afhentar.
Eignarréttur að vörunum tilheyrir félaginu þar til endurgjald fyrir vörurnar hefur að fullu verið innt af hendi.
Falli reikningur í eindaga ber viðskiptavini að greiða dráttarvexti í samræmi við III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Hafi viðskiptavinur ekki greitt reikning innan 30 daga eftir eindaga er félaginu heimilt að rifta samningi við viðskiptavin um vörurnar.
Villur og breytingar
Upplýsingar um vörur, verð og afhendingu geta í undantekningartilvikum innihaldið villur eða ónákvæmni.
Í slíkum tilvikum áskilur félagið sér rétt til að falla frá pöntunum og/eða leiðrétta slíkar villur án ábyrgðar. Verða viðskiptavinir upplýstir um slíkar breytingar eins fljótt og auðið er.
Vöruskil, kvartanir og ábyrgð
Viðskiptavinir eru hvattir til að yfirfara vörur við móttöku og tilkynna sem fyrst um galla, skemmdir eða rangar afhendingar. Berast engar slíkar tilkynningar innan 7 daga frá afhendingu varanna til viðskiptavinar eða til flutningsaðila hafi viðskiptavinur óskað eftir því að vörurnar yrðu sendar, getur viðskiptavinur ekki borið fyrir sig galla, skemmdir og/eða rangar afhendingar.
Vöruskil eru háð samþykki félagsins og koma eingöngu til skoðunar þegar um er að ræða óuppteknar og óskemmdar vörur sem eiga nægan líftíma eftir.
Hafi tilkynning um galla, skemmdir eða ranga afhendingu borist innan tímamarka samkvæmt ákvæði þessu og slík tilkynning á við rök að styðjast, áskilur félagið sér rétt til að ákveða til hvaða úrræða gripið verður s.s. úrbóta, endurgreiðslu eða afhendingu nýrrar vöru. Ábyrgð félagsins vegna galla, skemmda og rangrar afhendingar vara takmarkast við það sem fram kemur í ákvæði þessu.
Félagið skal undir engum kringumstæðum bera ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni viðskiptavinar, þ.m.t. rekstrartaps, missis hagnaðar eða viðskiptavildar eða vanefndar viðskiptavinar á samningi við þriðja aðila. Skapist bótaskylda á hendur félaginu skal bótaábyrgð félagsins takmarkast við 1.200.000 króna.
Óviðráðanleg atvik
Geti félagið vegna óviðráðanlegra atvika ekki efnt skyldur sínar gagnvart viðskiptavini er félagið laust undan öllum skuldbindingum sínum um þann tíma sem óviðráðanleg atvik standa yfir og viðskiptavinur á ekki rétt til að beita vanefndaúrræðum gagnvart félaginu, þ.m.t. kröfum um endurgreiðslu, afslátt, skaðabætur eða riftun.
Með óviðráðanlegum atvikum er átt við atburð eða aðstæður sem ekki eru á valdi félagsins enda sé þannig háttað um þau að félaginu hafi ekki verið unnt að yfirvinna þau með eðlilegum ráðum. Án takmörkunar um almennt gildi þess sem að framan greinir skulu óviðráðanleg atvik m.a. taka til styrjalda, uppreisna, skemmdarverka, óeirða, farsótta, náttúruhamfara, aðgerða stjórnvalda svo sem á sviði gjaldeyris- og viðskiptamála, viðskiptabanna, almennra samgönguhindrana, bilana í framleiðslutækjum, hvers kyns netárása, óviðráðanlegra atvika í samskiptum við undirverktaka og birgja og hvers kyns ámóta atvika sem valda röskun á efndum félagsins, þ.m.t. ef birgjar eða þjónustuaðilar félagsins geta ekki uppfyllt skuldbindingar sínar gagnvart félaginu á grundvelli óviðráðanlegra atvika sem leiða til þess að félagið geti ekki efnt skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavini. Komi til þess að óviðráðanleg atvik standi yfir í 30 daga samfellt eða lengur getur félagið rift eða sagt upp samningi við viðskiptavin fyrirvaralaust án þess að baka sér bótaskyldu.
Persónuvernd
Félagið leggur áherslu á að öll vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Félagið kemur fram sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga tengiliða sem koma fram fyrir hönd fyrirtækja og annarra lögaðila í viðskiptum við félagið. Um vinnslu félagsins á slíkum upplýsingum vísast til Persónuverndarstefnu félagsinssem finna má á vefsíðu félagsins.
Gildandi lög
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli aðila á grundvelli skilmála þessara skal leyst úr honum fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Breytingar á skilmálum
Félagið áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum og munu breytingar tilkynntar með a.m.k. 30 daga fyrirvara á vefsíðu félagsins.
Persónuverndarstefna
Iðnmark ehf., kt. 410288-1259, Gjótuhrauni 5, 220 Hafnarfirði (einnig vísað til „félagsins“, „Iðnmark“ og „okkar“) leggur áherslu á öryggi og trúnað persónuupplýsinga og vinnur með þær í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um vinnslu félagsins á persónuupplýsingum, þar á meðal hvaða persónuupplýsingum félagið safnar og með hvaða hætti það nýtir slíkar persónuupplýsingar.
Persónuverndarstefna þessi á eingöngu við þegar Iðnmark vinnur persónuupplýsingar sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga, t.d. þegar Iðnmark vinnur persónuupplýsingar tengiliða sem koma fram fyrir hönd lögaðila sem eiga í viðskiptum við félagið eða umsækjenda um störf hjá félaginu.
Hvaða persónuupplýsingar vinnum við?
Vinnsla Iðnmark á persónuupplýsingum fer eftir sambandi Iðnmark við þá einstaklinga sem upplýsingarnar tilheyra.
Í eftirfarandi köflum má finna nánari upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar Iðnmark vinnur í ólíkum samningssamböndum, lýsingu á því í hvaða tilgangi vinnslan fer fram og á hvaða grundvelli vinnslan byggir.
a) Tengiliðir viðskiptavina
Meginstarfsemi félagsins felst í vörusölu til lögaðila. Komir þú fram fyrir hönd slíks viðskiptavinar okkar, t.d. í samskiptum við félagið eða við nýskráningu og innsendingu pantana í gegnum vefverslun félagsins á síðunni www.snakk.iseða komir þú fram fyrir hönd einhverra af okkar birgjum, vinnur Iðnmark eftirfarandi upplýsingar um þig, á grundvelli lögmætra viðskiptahagsmuna félagsins:
- Nafn
- Netfang og símanúmer
- Heiti, kennitala og heimilisfang fyrirtækis sem tengiliður kemur fram fyrir hönd
- Vinnustaður
- Upplýsingar um pantanir og viðskiptasögu, eftir því sem við á
- Upplýsingar um samskipti vegna pantana og viðskipta
Þá kann Iðnmark að nota tengiliðaupplýsingar til að senda þér upplýsingar um nýjar vörur og tilboð. Sú vinnsla byggir á lögmætum viðskiptahagsmunum félagsins, en þú getur ávallt afþakkað slíka tölvupósta með því að smella á tengil sem birtist neðst í viðkomandi pósti.
b) Vefsíða Iðnmark
Á vefsíðu Iðnmarks www.snakk.is getur þú sent okkur erindi, hvort sem það er almenn fyrirspurn eða ábending. Þegar þú sendir okkur fyrirspurn og/eða ábendingu óskum við eftir eftirfarandi persónuupplýsingum, á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar til að hafa samband við þig og eftir atvikum á grundvelli beiðni þinnar um að gera samning:
- nafn og netfang
- símanúmer
- tegund og efni fyrirspurnar
- eftir atvikum, upplýsingar um kaupsögu
Í vefversluninni (Odoo) eru skráðar upplýsingar um fyrirtæki, þ.m.t. heiti, kennitala og heimilisfang, nafn, netfang og símanúmer tengiliða, innskráningarupplýsingar, pantanir og pöntunarsaga og samskipti vegna pantana. Vefþjónn skráir IP-tölu, heimsótta slóð og tímasetningu í aðgangsskrám. Heimsóknaskráning vefverslunar geymir land og hvaða síður voru skoðaðar, en ekki IP-tölur.
Vefverslunin notar eingöngu nauðsynlegar vefkökur til að tryggja virkni hennar, meðal annars vegna innskráningar, vörukörfu og tungumálavals. Engar þriðju aðila vefkökur eru notaðar og engar vefkökur eru notaðar til greiningar eða markaðssetningar.
c) Húsnæði Iðnmark
Eftirfarandi persónuupplýsingum er safnað um fundargesti sem koma í húsnæði Iðnmark, en sú vinnsla er byggð á lögmætum hagsmunum okkar, þar sem hún er nauðsynleg í öryggis- og eignarvörsluskyni:
- nafn og tími fundar
- símanúmer
- hvaða starfsmann er verið að hitta
d) Starfsumsóknir
Ef þú sækir um starf hjá félaginu vinnum við eftirfarandi persónuupplýsingar um þig:
- upplýsingar sem fram koma í ferilskrá og kynningarbréfi
- upplýsingar á umsóknarformi, þ.m.t. um starfsferil og menntun
- upplýsingar sem koma fram í starfsviðtali, eftir því sem við á
Komist þú áfram í ráðningarferlinu kunnum við eftir atvikum að óska eftir eftirfarandi upplýsingum um:
- sakavottorð
- upplýsingar frá meðmælendum
Eftir að sakavottorð hefur verið skoðað er því eytt. Sú vinnsla byggir á lögmætum hagsmunum félagsins af því að tryggja öryggi og heilleika vinnustaðarins.
Upplýsingum um starfsumsækjendur er fyrst og fremst aflað frá umsækjendum sjálfum, en kann einnig að vera aflað frá meðmælendum og eftir atvikum ráðningarskrifstofum og eru þær notaðar til að meta hæfni þína til að sinna viðkomandi starfi. Byggir sú vinnsla okkar á beiðni þinni um gerð ráðningarsamnings.
Félagið geymir persónuupplýsingar umsækjenda í allt að 6 mánuði eftir að umsókn berst félaginu, en að þeim tíma loknum er umsóknum eytt með öruggum hætti.
Varðveisla og öryggi
Að öðru leyti en tekið er sérstaklega fram í stefnu þessari varðveitir Iðnmark persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er vegna tilgangs vinnslunnar eða samkvæmt lagaskyldu, meðal annars vegna bókhalds. Samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðila vefverslunar eru upplýsingar um viðskiptavini, pantanir og reikninga varðveittar á meðan viðskiptasamband varir og eftir það eins lengi og lög um bókhald krefjast, almennt í sjö ár. Aðgangsskrár vefþjóns eru geymdar í 14 daga. Heimsóknaskráningu óinnskráðra gesta er eytt sjálfkrafa eftir 60 daga óvirkni. Dulkóðuð öryggisafrit vefverslunar eru tekin daglega og varðveitt í allt að sex mánuði, og eyddar upplýsingar hverfa því úr afritunum innan þess tíma.
Gerðar eru viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, tapi og misnotkun, allt með hliðsjón af eðli og umfangi vinnslu. Dæmi um slíkar ráðstafanir eru aðgangsstýringar að kerfum þar sem upplýsingar eru vistaðar og sérstakir ferlar og verklag í tengslum við öryggi gagna og upplýsinga.
Miðlun upplýsinga
Vefverslunin (Odoo) er rekin fyrir Iðnmark af Vitus lausnum / Eno og hýst hjá þjónustuaðila innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Grunnupplýsingar viðskiptavina og reikningar eru einnig skráðar í DK-bókhaldskerfi. Viðskiptavinaskrá er flutt þaðan yfir í vefverslunina og pantanir eru fluttar til baka í DK, en sú yfirfærsla er ekki sjálfvirk sem stendur. Microsoft 365 er notað fyrir tölvupóst, meðal annars pöntunarstaðfestingar og samskipti við viðskiptavini. Öryggisafrit vefverslunar eru geymd dulkóðuð hjá hýsingaraðila innan EES. Staðsetning vinnslu og mögulegir gagnaflutningar vegna annarra þjónustukerfa, þar á meðal Microsoft 365, eru ekki staðfest í þessum upplýsingum.
Félagið kann að miðla persónuupplýsingum til þriðju aðila sem veita félaginu þjónustu sem tengist vinnslu persónuupplýsinga og er hluti af rekstri félagsins. Dæmi um slíka aðila eru utanaðkomandi ráðgjafar, s.s. endurskoðendur, lögmenn og úttektaraðilar, en einnig aðilar sem veita félaginu bókhaldsþjónustu og upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu s.s. í tengslum við rekstur vefverslunar okkar. Miðlun persónuupplýsinga til slíkra aðila er byggð á lögmætum hagsmunum félagsins af því að úthýsa tilteknum verkefnum til utanaðkomandi aðila.
Þar að auki kann félagið að miðla persónuupplýsingum til eftirlitsyfirvalda þegar félaginu er það skylt samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum eða dómsúrskurði. Dæmi um slíka miðlun er afhending persónuupplýsinga til skattsins eða lögreglu á grundvelli dómsúrskurðar eða lögmætrar beiðni.
Þessir aðilar kunna að vera staðsettir utan Íslands. Félagið mun þó ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála, samþykki þíns eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.
Réttindi einstaklinga
Þú átt rétt á að fá aðgang og í ákveðnum tilvikum afrit af þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig sem og upplýsingar um vinnsluna.
Við ákveðnar aðstæður kannt þú jafnframt að hafa heimild til að óska eftir því að persónuupplýsingum um þig verði eytt eða að vinnsla þeirra verði takmörkuð. Þá átt þú rétt á að fá persónuupplýsingar þínar leiðréttar, séu þær rangar eða óáreiðanlegar. Því er mikilvægt að þú tilkynnir okkur um allar breytingar sem kunna að verða á persónuupplýsingum þeim sem þú hefur látið okkur í té, á þeim tíma sem við á.
Auk þess kann að vera að þú eigir rétt á afriti af þeim upplýsingum sem þú hefur afhent okkur á tölvutæku formi, eða að við sendum þær beint til þriðja aðila.
Þegar við vinnum persónuupplýsingar þínar á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar getur þú andmælt þeirri vinnslu. Þegar við vinnum með upplýsingar þínar á grundvelli samþykkis átt þú jafnframt alltaf rétt á að afturkalla slíkt samþykki.
Ofangreind réttindi þín eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög eða reglugerðir að heimila eða skylda félagið til að hafna beiðni þinni um að nýta þér umrædd réttindi. Réttur þinn til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna beinnar markaðssetningar er þó fortakslaus.
Viljir þú senda fyrirspurn beint á Persónuvernd, eða komi upp ágreiningur um meðferð þinna persónuupplýsinga, er þér ávallt heimilt að senda kvörtun til Persónuverndar. Slíkt er gert með því að senda tölvupóst á postur@personuvernd.is eða með bréfapósti til:
Persónuvernd
Laugavegi 166, 4. hæð
105 Reykjavík
Samskipti
Ef þú vilt nýta þér þau réttindi sem lýst er í stefnu þessari, eða ef þú hefur einhverjar spurningar er varða það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við félagið á netfangið snakk@snakk.is eða í síma 565 2555, sem mun leitast við að svara fyrirspurnum og leiðbeina þér um réttindi þín samkvæmt persónuverndarstefnu þessari.
Breytingar
Félagið kann frá einum tíma til annars að gera breytingar á persónuverndarstefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar. Breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu fyrirtækisins; www.snakk.is.
Útgáfa: 29. október 2026.